Testo Klámstrákur

Testo Klámstrákur

Ég væli og væli meira
Ég græt og græt meira
Ég nötra og skelf allur meira og meira og meira
Ég veikist og veikist meira
Ég hósta og hósta upp meira
Þessir læknar vita ekki hvað þeir eru að segja
Þarf ég að sanna að ég sé að deyja?
Veik sjálfsmynd
Ég er dekruð ókind,
Syndaselur,
Slyngur eins og minkur,
Graður lítill melur
Er alltaf drukknandi í móral,
Geri samt allt ef það selur
Slöngva glingri á fingur
Ég er kvíðasjúklingur
Ælandi, skælandi, vælandi
Allur í böggli
Ligg vel við höggi

Ég er þessi týpa, algjör tepra með læti
Þú ert klámstrákur
Þú ert klámstrákur

Stundum er að lemja
Stundum er að kremja
Binda niður klámdrenginn, vonda drenginn
Ég er klámstrákur
Kynþokkafullur karlmaður
Stundum er ég góður drengur,
Stundum vondur
Stundum er leðurþvengur,
Stundum er hann þröngur
Stundum ligg ég einsamall,

Algjörlega einmana,
Bundinn niður andvaka,
Klístraður drengur
Þú ert klámstrákur
Þú ert klámstrákur,
ógeðslegur karlmaður
Klámstrákur
Andstyggðardrengur
Þú ert klámstrákur
Mér býður við þér

Veik sjálfsmynd
Ég er dekruð ókind,
Syndaselur,
Slyngur eins og minkur,
Graður lítill melur
Er alltaf drukknandi í móral,
Geri samt allt ef það selur
Slöngva glingri á fingur

Ég er kvíðasjúklingur
Ælandi, skælandi, vælandi
Allur í böggli
Ligg vel við höggi
Ég er þessi týpa, algjör tepra með læti
Óteljandi blæti

Þú ert klámstrákur
Þú ert klámstrákur,
Viðurstyggilegur
Klámstrákur
Þú ert klámstrákur
ógeðslegur karlmaður
Testi Hatari