Testo Sumargestur

Testo Sumargestur

Fuglinn minn úr fjarska ber
Fögnuð vorsins handa mér.
Yfir höfin ægi-breið
Ævinlega – flýgur rétta leið.

Tyllir sér á græna grein
Gott að hvíla lúin bein
Ómar söngur hjartahlýr
Hlusta ég á – lífsins ævintýr.

Fús ég þakka fuglinn minn
Fyrir gleði-boðskapinn
Þessa ljúfu tæru tóna - tóna

Þegar haustar aftur að
Af einlægni ég bið um það
Að mega syngja sönginn þinn
Sumargestur – litli fuglinn minn.

Fús ég þakka fuglinn minn
Fyrir gleði-boðskapinn
Þessa ljúfu tæru tóna - tóna
Þú átt athvarf innst í sál
Ó að ég kynni fuglamál
Skyldi ég lag á lúftgítarinn prjóna.
Testi Ásgeir Trausti